Skólaslit TÁT verða haldin í dag þriðjudaginn 31. maí kl. 17.00. í Tjarnarborg í Fjallabyggð.

Á facebooksíðu Tónlistarskólans á Tröllaskaga segir “Þetta árið ætlum við að breyta til og hafa ein skólaslit og bjóða upp á streymi fyrir þá sem vilja það heldur og sjá sér ekki fært að mæta. Þetta árið byrjum við í Tjarnarborg í Ólafsfirði, en svo á næsta ári færast þau til, verða í Dalvíkurbyggð.

Með einum slitum náum við að minnka umstang og fá alla nemendur, kennara og foreldra saman á einn stað. Best er að fá sem flesta í Tjarnarborg af okkar nemendum og þá sérstaklega þá sem eru að fá próf og viðurkenningar.

Við ætlum að hafa kaffi á eftir skólaslitum, tónlistarskólinn sér um koma með drykkjaraðföng og foreldrar og nemendur koma með brauð og kökur. Þetta hefur verið hefð í Fjallabyggð og gaman að taka þetta upp í Dalvíkurbyggð líka þegar slitin verða þar á næsta ári.

Það er gott að setjast niður með nemendum, kennurum og foreldrum eftir veturinn og ræða málin, gott er að klára að innrita sig í skólann aftur þegar kökuátinu líkur. Á skólaslitunum verður meira af tónlistaratriðum og minna um talað mál til að gera athöfnina skemmtilegri. Sömu viku sendum við yfirlit um skólaárið ásamt tölulegum upplýsingum og svo umsögnum nemenda til allra foreldra og nemenda í tölvupósti.
Kveðja Starfsfólk TÁT”.