Ástarpungarnir ætla að vera með kvöldvöku í beinu streymi á YouTube rás Straumanda í kvöld sunnudaginn 1. ágúst klukkan 20:00.
Þeir lofa góðri skemmtun og vona að allir muni syngja sem hæst með heima í stofu.
Hljómsveitina skipa þeir Guðmann, Hörður Ingi, Júlíus, Mikael og Rodrigo. Einnig er von á leynigesti í kvöld og Gunnar Smári mixar tónleikana.
Frítt verður inn á viðburðinn.
Streymið er hægt að nálgast á þessari slóð: https://youtu.be/0Aty8dgGhs0
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2021/07/225890942_211018847616637_4644866336961758041_n-1024x666.gif)