Ingi Vífill Guðmundsson, hefur verið ráðinn á starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Sauðárkróki.

Í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands segir að Ingi Vífill hafi reynslu á rekstri sprotafyrirtæka og nýsköpunar á sviði markaðs- og kynningarmála. Hann sé með fjölbreytta menntun og er meðal annars grafískur hönnuður. Ingi Vífill hefur unnið að markaðssetningu á samfélagsmiðlum hjá aðilum eins og auglýsingastofunni ENNEMM, Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Hannesarholti. Frumkvöðla- og hönnunarhugsun er honum eðlislæg.

Starfsstöð hans verður hjá Byggðastofnun.

Af: skagafjordur.is