Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert.
Skráning er hafin.
Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta/hjólabretti o.s.frv. Þeir sem nota almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin/hjóluð er til og frá stoppistöð.
Keppnisgreinarnar eru 2:
- Vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega m.v. heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum.
- Kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra m.v. fjölda liðsmanna í liðinu.
Skráning og nánari upplýsingar á https://www.hjoladivinnuna.is