Framúrskarandi verkefni 2023

SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2023. 

Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í mars 2024.

Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:

  1. Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
  2. Verkefni á sviði menningar.

Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.

Tekið er við tilnefningum til miðnættis 24. janúar 2024 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti. 

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2019 fengu: Sýndarveruleiki ehf. og Kakalaskáli.

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2020 fengu: Vörusmiðja Biopol og Handbendi brúðuleikhús.

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2021 fengu: Brúnastaðir í Fljótum, Maður og kona ehf. og Sögufélag Skagafjarðar.

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2022 fengu: Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.

Nánari umfjöllun á heimasíðu SSNV.