Fasteignamiðlun kynnir eignina Hólavegur 41, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0460 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hólavegur 41 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0460, birt stærð 207.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða einbýlishús efst í hlíðum Siglufjarðar og því með miklu og fallegu útsýni og skjólgóðum garði. Gengið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi. Gestabaðherbergi var breytt í rúmgott fatahengi en lagnir eru til staðar og því auðvelt að breyta til baka.  Flísar eru á gólfi. Svefnherbergi er inn af anddyri með teppi á gólfum. Búr/geymsla er við hlið fatahengis með góðu hilluplássi. Eldhús er með dökkum innréttingum, efri og neðri skápum og ljósri viðarborðplötu. Flísar eru á gólfi í eldhúsi. Inn af eldhúsi er sjónvarpshol.  Stofa er mjög rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi og útgangi út á skjólgóðan timburpall. Stofan er björt með stórum gluggum og fallegu útsýni yfir fjörðinn. Í svefnherbergisálmu eru fjögur svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og þrjú þeirra með fataskáp. Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með frístandandi sturtuklefa, hvítri innréttingu, vask og upphengdu klósetti. Skipt var um vatnslagnir og hiti settur í gólf. Bílskúr er steyptur 62m2 að stærð og frístandandi utan við eign. Tvær rafdrifnar bílskúrshurðar eru á bílskúr og ráphurð.  Bílskúrinn þarfnast viðhalds.

Anddyri: er rúmgott með flísum á gólfi og sér fataherbergi með fataslá. 
Eldhús: er með dökkum innréttingum, efri og neðri skápum, og flísum á gólfi. 
Stofa: er rúmgóð með parket á gólfi og sérútgang út á timburpall. Fallegt útsýni er úr stórum gluggum í stofu. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, frístandandi sturtuklefa og upphengdu klósetti. 
Svefnherbergi: eru 5 talsins öll misstór. 
Þvottahús: er rúmgott með sérútgang. Hitagrind er inn í þvottahúsi en gólf er steypt og málað. 
Búr/Geymsla: er með flísum á gólfi og góðu hilluplássi. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.