Í vikunni sem leið stóðu yfir Barnamenningardagar í Fjallabyggð.

Í tilefni þess var leikskólabörnum í sveitarfélaginu boðið að heimsækja Síldarminjasafnið á Siglufirði.

Í þetta sinn hittu þau fyrir síldarstúlkur í Róaldsbrakka. Lesinn var kafli um síldarsöltun úr Sögu úr síldarfirði, rætt um störf síldarstúlkna og börnunum sýnd helstu áhöld sem þær notuðust við.

Svo fengu þau auðvitað að skoða vistarverur stúlknanna á lofti hússins. “Við erum því handviss um að nú séu sextíu litlir sérfræðingar um síldarsöltun og síldarstúlkur hér í Fjallabyggð” segja síldarstúlkurnar.

Myndir/Síldarminjasafnið