Sunnudaginn 13. október var haldið upp á 40 ára afmæli Dalbæjar og voru þá kynnt til sögunnar Hollvinasamtök Dalbæjar. Tilgangur samtakanna er að að styðja við Dvalarheimilið með framlögum til tækjakaupa og ýmiskonar búnaðar.

Framlögum í félagið er safnað með félagsgjöldum félagsmanna og er árgjaldið 5.000 kr.

Með stofnun samtakanna er vonast til að stuðlað verði að bættri aðstöðu heimilisfólks, sem og starfsfólksins. Stjórnin vonast til að sem flestir gerist félagar og hjálpist að til að ná settu markmiði.

Skráning í félagið er á vefsíðu sem stofnuð var í tilefni afmælis Dalbæjar og stofnun Hollvinasamtakanna, www.dalbaer.is

 

Í stjórn Hollvinasamtaka Dalbæjar eru:
Rúna Kristín Sigurðardóttir – formaður
Júlíus Júlíusson – varaformaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir – ritari
Kristín Svava Stefánsdóttir – gjaldkeri
Aðrir meðstjórnendur eru:
Arnar Símonarson
Eva Björg Guðmundsdóttir
Helga Mattína Björnsdóttir
séra Oddur Bjarni Þorkelsson
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson

Mynd: Dvalarheimilið Dalbær