Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2022.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt á fundi sínum þriðjudaginn 9. nóvember 2021 að útnefna Aðalheiði S. Eysteinsdóttur sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2022.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23. júní 1963 og bjó þar til 1986, þá fluttist hún til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989-93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að vera athafnasamur myndlistarmaður. Hún starfrækti Kompuna, gallerí í Listagilinu á Akureyri í 8 ár, tók virkan þátt í uppbyggingu “Listagilsins” á Akureyri og er einn af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri.

Aðalheiður hefur sett upp rúmlega 200 einkasýningar í 14 löndum og verk eftir hana má finna í einkasöfnum víða um heim. Hún hefur sýnt á öllum stærstu listasöfnum landsins og er félagi í SÍM og Myndhöggvarafélaginu. Einnig hefur hún fengist við kennslu á öllum skólastigum undanfarin 25 ár.

Árið 2000 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar og sama ár hóf hún þátttöku í Dieter Roth akademíunni. Aðalheiður hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun ríkisins.

Í desember 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið upp vinnustofu, heimili og viðburðastað þar. Frá árinu 2012 hefur Aðalheiður staðið fyrir margþættu menningarstarfi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og endurvakið Kompuna þar í litlu rými. Aðalheiður hefur kappkostað að sýna fjölbreytta nútímamyndlist með því markmiði að opna hurð inn í heim myndlistar fyrir almenning.

Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV árið 2015 og var tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2017 og aftur árið 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu.

Fjöldamörg verk eftir Aðalheiði prýða ýmsa staði á Íslandi. Þrívíðir tréskúlptúrar hennar sem unnir eru úr tilfallandi og fundnu efni eru einstakir  og auðþekkjanlegir og skúlptúrsinnsetningar hennar verða sífellt umfangsmeiri. Tilbrigðasterkir karakterar eftir Aðalheiði prýða marga staði, innan sem utandyra víðs vegar á landinu.

Vinnustofa og heimili Aðalheiðar er í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og í  Freyjulundi, 601 Akureyri.

Dagskrá Alþýðuhússins á árinu 2022 verður fjölbreytt að venju en húsið á 10 ára afmæli á árinu 2022. Mun Aðalheiður m.a. setja upp sýningu í Ráðhússal Fjallabyggðar í júlí í tilefni af afmælinu en þar verða til sýnis lágmyndir eftir hana en eins og hún segir sjálf þá er komið að því að koma þeim í forgrunn og sjá hvaða ævintýri þær hafa upp á að bjóða. Á árinu mun Aðalheiður einnig taka þátt í sýningunni Sköpun Bernskunnar á Listasafninu á Akureyri í febrúar. Afhjúpa nýtt verk í Garðinum við Alþýðuhúsið í júlí, vinna með Flux Factory í Aros listasafninu í Árósum í september og sýna í Kompunni í desember.

Aðalheiður hefur unnið óeigingjarnt starf til eflingar menningar í samfélaginu svo um munar og atorkusemi hennar við að efla og halda uppi  fjölbreyttu listalífi á Siglufirði og landinu öllu er einstök.

Aðalheiði er þakkað hið gríðarlega mikla og góða starf sem hún hefur gefið  til samfélagsins á síðastliðnum 10 árum og með stolti óskum við henni innilega til hamingju með nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2022.

13 tilnefningar bárust og þakkar markaðs- og menningarnefnd kærlega fyrir þær.