Frá sameiginlegum starfsdegi leikskólanna

Sameiginlegur starfsdagur leikskólanna í Húnavatnssýslum og Strandabyggð var haldinn í Húnavallaskóla föstudaginn 11. október. Starfsdagurinn markar upphaf að þróunarverkefni skólanna „Færni til framtíðar“. Í uppafi verkefnisins er áhersla lögð á að kynna hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði fyrir starfsfólki skólanna og hvernig hægt sé að nýta hana bæði í starfi og einkalífi. Markmiðið er að starfsfólk öðlist aukna færni í að vinna með mannlega hegðun og hafa áhrif á börn og nærumhverfi.

Jákvæð sálfræði (positive psychology) er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum hliðum mannsins eins og styrkleikum, vellíðan og hamingju og finna leiðir til að efla líðan enn frekar.

Við fengum til okkar frábæra fyrirlesara þar sem áherslan var lögð á að kenna hvernig við náum fram því besta í okkur sjálfum og hvernig það hjálpar okkur í öllum samskiptum.

Helga Marín Bergsteinsdóttir er með MSc. í heilsuþjálfun og kennsluréttindum, diplómu í jákvæðri sálfræði, ACC markþjálfi og NLP ráðgjafi.

Helga Malrín flutti fyrirlesturinn „Þú ert það sem þú hugsar“.

Þar fékk hún þátttakendur til að kynnast eigin styrkleikum og þeim fjársjóði sem býr innra með þeim. Einnig fengu þátttakendur að upplifa mátt hugans og hvernig virkja megi þann kraft til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd og öflugt sjálfstraust.

Jón Halldórsson er menntaður íþróttakennari, lögreglumaður og vottaður ACC markþjálfi.

Jón flutti fyrirlesturinn „Jákvæð samskipti“

Hann fjallaði um það hvernig við getum aukið færni okkar í að skilja samstarfsfélagana, hvaðan þeir koma og hvernig þeirra “gildi” móta daglega hegðun þeirra. Einnig fór hann yfir það hvernig við byggjum upp jákvæða samskiptamenningu á vinnustað.

Skemmtilegir og fræðandi fyrirlestrar þar sem jákvæðni og gleði ríkti.

Guðrún Lára Magnúsdóttir

Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir

Jóhanna G: Jónasdóttir

Lilja Guðlaug Ingólfsdóttir

Sigríður B. Aadnegard

Skólastjórnendur leikskólanna