Hoppubelgurinn sem staðsettur er á Hvammstanga hefur verið blásinn upp, yngri kynslóðinni til mikillar ánægju.

Húnaþing vestra sendi út eftirfarandi tilkynningu til forráðamann barna og ungmenna.

“Mikilvægt er að foreldrar og börn hafi það í huga að hoppubelgurinn er eign okkar allra og við hjálpumst við það í sameiningu að ganga vel um og fara eftir reglum. Allir eru á eigin ábyrgð á hoppubelgnum – Börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.

  • Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
  • Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
  • Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
  • Sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.

Hoppubelgurinn verður uppblásinn frá 10:00 til kl. 20:00 alla daga”.

Mynd/Húnaþing vestra