Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hornbrekka í Ólafsfirði óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi.
- Reynsla og áhugi af starfi með öldruðum.
- Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
- Góð íslenskukunnátta
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SFV og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Umsóknir sendast á netfangið birna@hornbrekka.is
Nánari upplýsingar veitir Birna Sigurveig Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 466 4066 / 663 5299 eða í gegnum birna@hornbrekka.is.