Lóðarhafar, landeigendur og aðrir eru hvattir til að taka virkan þátt í átakinu og hreinsa af lóðum og lendum allt sem getur valdið ónæði, mengun eða er til lýta.
Lengdur opnunartími Hirðu verður laugardaginn 1. júní frá kl. 11:00-17:00
Nýtt afgirt og læst geymslusvæði sveitarfélagsins að Syðri Kárastöðum hefur verið tekið í notkun, aðilar geta óskað eftir því að fá leigt pláss á svæðinu. Eyðublöð varðandi það er að finna á heimsíðu sveitarfélagsins eða á skrifstofu Húnaþings vestra. Eldra geymslusvæði verður hreinsað og þeir sem eiga þar hluti geta sótt um leigupláss á nýja svæðinu.
Gjaldskrá vegna geymslusvæða
25 m2 svæði ,kr. 2.800 á mánuði
50 m2 svæði, kr. 3.500kr á mánuði
100 m2 svæði, kr. 7.500 kr á mánuði
Dagana 5. – 7. júní 2019 munu starfsmenn sveitarfélagsins fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk á Hvammstanga og Laugarbakka.
Umhverfissvið Húnaþings vestra