Starfsmenn þjónustumiðstöðvar verða á ferðinni á Hvammstanga og laugarbakka í dag föstudaginn 17. janúar til að hirða upp jólatré sem lokið hafa sínu hlutverki yfir jólahátíðina.

Jólatrén þurfa að vera staðsett við lóðamörk á sýnilegum stað en þó þarf að tryggja að þau fjúki ekki. Einnig er hægt að hringja í starfsmann þjónustumiðstöðvar og láta vita.

Starfsmaður þjónustumiðstöðvar, Sigurður Björn í síma: 899-8918

Mynd: Húnaþing vestra