Hugleiðingar H-lista manns;
Nú í aðraganda kosninga er engin hörgull á loforðum framboða um það hvernig eigi að ráðstafa féi
bæjarsjóðs næstu árin. Sjaldan rekst maður á góðar hugmyndir varðandi uppbyggingu atvinnu og þar af
leiðandi tekjuöflun.
Fjallabyggðahafnir hafa nú á dögum ágæta hafnaraðstöðu í báðum byggðarkjörnum. Þrátt fyrir að
veiðiheimildir og skipakostur hafi svo sannarlega verið meiri hér áður fyrr, þá hefur það færst töluvert í
vöxt að skip með heimilisfesti annarsstaðar en í Fjallabyggð komi hingað til löndunar. Vert er að hafa í
huga að þessi aðkomuskip sem kosið hafa að landa hér skilja eftir sig töluverða fjármuni bæði hjá
bæjarsjóðum sem og þjónustuaðilum ýmsum hérna í Fjallabyggð.
Eitt af þessum gjöldum sem öll skip stór og smá greiða til löndunarhafnar er aflagjald og nemur það 1.6%
verðmæta landaðs afla og rennur gjald þetta á endanum í bæjarsjóð. Þá á eftir að telja til margfeldisáhrif
eins og þjónustu fiskmarkaða eða löndunarfyrirtækis, viðlegugjald í fjallabyggðahöfnum, verslun og
viðskipti með ýmsa þjónustu eins og við vélaverkstæði, olíuumboð, matvöruverslanir og svo framvegis.
Sem sjómaður og smáútgerðarmaður hef ég horft mikið til þess hvort ekki væri hægt að nýta
hafnarmannvirki okkar betur. Bæjaryfirvöld ásamt hagsmunaaðilum á svæðinu t.d. Fiskmarkaðs
Siglufjarðar, JE vélaverkstæðis, Vélsmiðju Ólafsfjarðar, Vélsmiðju Einars, og fleiri þjónustuaðila á
svæðinu gætu ráðist í sameiginlegt átak til að fjölga útgerðum sem kjósa að nota Fjallabyggðarhafnir
sem þjónustuhöfn. Er ég þá að leggja til að farið verði í markvissa kynningu með auglýsingum og
útsendingu upplýsinga til útgerða vítt og breitt um landið.
Fjallabyggð gæti lækkað örlítið aflagjaldið eða önnur gjöld og slegið þar með tvær flugur í einu höggi;
Gert Fjallabyggð að hagkvæmari kosti til löndunar og þjónustu, sem og komið til móts við þær útgerðir
sem þó starfa ennþá á svæðinu þar sem miklir erfiðleikar hafa verið í útgerð stórri og smárri að
undanförnu.
Ef okkur tækist að fjölga aðkomuskipum sem kjósa að nota þjónustu okkar, þá myndi það leiða af sér
margfeldisáhrif sem myndu koma öllum í Fjallabyggð vel.
Hugleiðingar eru til alls fyrstar, og vonandi ber okkur gæfa til þess að taka höndum saman og nýta þá
þegar tilbúna innviði okkar hérna í Fjallabyggð til tekjuöflunar.
Andri Viðar
6. sæti H-listans… sem er fyrir HEILDINA