Eitt af hlutverkum Menningarfélags Húnaþings vestra er að starfrækja húsnæði að Eyrarlandi 1 (2. hæð) á Hvammstanga og er það ætlað fyrir lista- og menningarstarfsemi.

Húsnæðið er hægt að leigja per. klukkustund og hefur í gegnum árin verið leigt út í ýmsum tilgangi. Sem dæmi má nefna að í húsnæðinu hafa verið hljómsveitaræfingar, leiklistaræfingar, ljóðalestur, tónlistarflutningur, fyrirlestrar, námskeið, viðburðir á vegum Elds í Húnaþingi, bækistöð fyrir kvikmyndateymi, vinnustofa Handbendis. Það eru ýmis tækifæri fólgin í nýtingu húsnæðisins, s.s. í frekari liststarfsemi, menningartengda klúbba, fundarhöld og þess háttar.

Hægt að sjá með auðveldum hætti hvort húsnæðið er laust til leigu eða upptekið? Hægt er að sjá það í dagatalinu hér. Þú getur svo bókað með því að senda okkur póst á stjorn@menhunvest.is.

Upplýsingar um verð er að finna hér, en ein klukkustund kostar félagsmeðlimi 500 kr. en aðra 1.000 kr. Það er auðveldlega hægt að gerast meðlimur með því að skrá sig hér.

Húsnæðið er hægt að nota til ýmissa viðburða