Fyrir lá vinnuskjal deildarstjóra félagsmáladeildar á 910. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar vegna málefna sambýlisins við Lindargötu og starfsemi þess.
Í fundargerð vegna breyttra aðstæðna við rekstur Sambýlisins að Lindargötu á Siglufirði er sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra félagsmáladeildar falið að vinna að endurskipulagningu starfseminnar og störfum starfsmanna í samráði við bæjarstjóra.
Auk þess er sama hópi falið að leggja fram tillögur að nýtingu húsnæðisins til lengri tíma og skila til bæjarráðs tillögum fyrir 15. mars 2026.
Trölli.is hafði samband við bæjarstjóra Fjallabyggðar vegna málsins og spurðist fyrir meðal annars hvort leggja ætti Sambýlið við Lindargötu niður, hvað væru margir íbúar þar og hvað yrði um þá ef af lokun yrði?
Svar Þóris Hákonarsonar við fyrirspurn Trölla er eftirfarandi:
Breyttar aðstæður eru þær helstar að tveir íbúar hafa látist síðan í desember og eru tveir vistmenn á Sambýlinu núna.
Að öðru leyti er vísað til bókunarinnar sem er skýr, sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra er falið að vinna að endurskipulagningu í samráði við bæjarstjóra. Þar til sú vinna hefur farið fram er ekki meira um málið að segja.



