Föstudaginn 5. okt. ráku Hvammstangabúar upp stór augu þegar búið var að breyta hinu rótgróna nafni Kaupfélags Vestur-Húnvetninga í Kaupfélag Erpsfirðinga.
Ekki var þó mikil alvara á ferðum því þarna var kvikmyndagerðar fólk að verki.
Til gamans má geta þess að Kaupfélag Vestur-Húnvetninga var stofnað 29. mars 1909 og er því 109 ára.
Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir
Mynd: Sigurvald Ívar Helgason