Samstarfsnefnd um mögulega sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar boðar hér til íbúafunda: 

  • Dalabúð þann 14. október kl. 17-19
  • Félagsheimilinu Hvammstanga 15. október kl. 17-19

Dagskrá:

1. Kynning á stöðu sameiningarviðræðna.

2. Vinnustofa um stjórnskipulag og þjónustu sameinaðs sveitarfélags.

Við hvetjum íbúa til að mæta til fundar og taka virkan þátt í samtalinu. 

Kynningunni verður deilt á netinu. Slóð á fundinn verður birt á heimasíðu sveitarfélaganna á fundardag.

Að loknum fundum verður boðið upp á súpu og brauð.

Samstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra.