Haldinn verður íbúafundur í Árskógi um málefni er snúa að laxeldi, mánudagskvöldið 22.október næstkomandi kl. 20:00
Til umræðu verða umsóknir og hugmyndir sem fyrir liggja um eldi og vinnslu á laxi í landi sveitarfélagsins.
Kynnt verða áform fyrirtækja um uppbyggingu og starfsemi í sveitarfélaginu á sviði laxeldis. Þá verður leitað eftir huga íbúanna til laxeldis í sjókvíum í Eyjafirði.
Á fundinn mæta sveitarstjóri og kjörnir fulltrúar ásamt þeim sviðsstjórum sveitarfélagsins sem umsóknirnar snúa að.
Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð
Mynd: pixabay