Á heimasíðu Húnaþings vestra hefur nú verið opnuð rafræn íbúagátt. Þar er hægt að nálgast útgefna reikninga frá sveitarfélaginu.
Einnig er hægt að skrá sig inn á svæði hitaveitunnar þar sem nálgast má allar helstu upplýsingar eins og notkun, álestra, hreyfingayfirlit, reikninga og viðskiptastöðu.
Notendur skrá sig inn á íbúagáttina með íslykli.
Með þessari þjónustu mun Húnaþing vestra hætta útprentun hitaveitureikninga. Þeir einstaklingar sem vilja áfram fá senda útprentaða reikninga geta óskað eftir því með að senda póst á netfangið helena@hunathing.is.
Með þessu er sveitarfélagið að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stuðla að umhverfisvænum rekstri.