Föstudaginn 16. febrúar s.l. skrifaði stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses (húsnæðissjálfseignarstofnun)  undir verksamning, að undangenginni tilboðsgerð, við forsvarsmenn Kötlu ehf. um byggingu á tveimur íbúðahúsum fyrir fatlað fólk við Lokastíg 3 á Dalvík. Um er að ræða annars vegar 5 íbúða raðhús með sjálfstæðri búsetu og hins vegar 2 íbúða hús með þjónusturými ætlað einnig fyrir skammtímavistun félagsmálasviðs.  Samkvæmt verksamningnum eru  verklok og afhending húsanna 31.  október 2019.

Undirbúningur félagsins  á byggingu húsanna hefur staðið yfir frá því í febrúar 2018.  Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses var stofnað af sveitarstjórn  Dalvíkurbyggðar árið 2017 og var þá jafnframt skipað til bráðabirgða í stjórn félagsins og settur framkvæmdastjóri. Ofangreind framkvæmd er til að svara eftirspurn um búsetuúrræði fyrir fötluð ungmenni í sveitarfélaginu.

Hönnuður húsanna er Ágúst Hafsteinsson, arkitekt, hjá Form ráðgjöf ehf. á Akureyri.  Á meðfylgjandi mynd með fréttinni má sjá hönnun á útliti húsanna.

.

Frétt og myndir: Dalvíkurbyggð