Notendur samfélagsmiðla Facebook um allan heim hafa lent í vandræðum með miðlana á síðustu klukkustundum. Facebook sagði frá þessu á Twitter fyrir skömmu og segir að verið sé að leita lausna á vandanum, sem nær til Facebook, Messenger og Instagram.

Notendur Facebook geta ekki sett inn færslur og notendur Instagram geta ekki sett inn færslur né skoðað nýjar færslur annarra. Þá mun Messenger ekki virka í símum margra.

Fyrirtækið hefur gefið út að vandinn tengist ekki tölvuárás og vandinn virðist vera hnattlægur.

 

Twitter