Íbúum í Dalvíkurbyggðar hefur fjölgað um 10 íbúa frá 1. des 2022.

Þann 1. ágúst 2023 voru 1.915 íbúar búsettir í sveitarfélaginu, 1. des. 2022 voru þeir 1.905 og nemur fjölgunin 0,5 %.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.639 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. ágúst 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 469 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 249 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.174 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 379 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 14,3% en íbúum þar fjölgaði um 16 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 12,1% en þar fjölgaði íbúum um 7 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,6% sem er fjölgun um 1.417 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 8.109 frá 1. desember 2022 til. 1. ágúst 2023 sem er um 2,1%.

Heimild/ Þjóðskrá Íslands