Á síðustu dögum hafa borist fréttir af alvarlegum veikindum af óþekktum orsökum í hundum í Noregi. Talsverður fjöldi hunda hefur veikst og samkvæmt síðustu upplýsingum er talið að á annan tug hunda hafi drepist en þeir gætu verið fleiri. Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um að heimila ekki innflutning hunda frá Noregi þar til nánari upplýsingar um orsök veikindanna liggur fyrir.

Helstu einkenni sjúkdómsins eru blóðug uppköst og niðurgangur. Norska dýraheilbrigðisstofnunin ásamt norsku matvælastofnuninni (Mattilsynet) vinnur nú að greiningu í samráði við dýralæknaháskólann í Noregi og þá dýraspítala sem hafa haft veika hunda til meðhöndlunar. Fjöldi sýna hefur veri tekinn til rannsóknar og fjórir hundar hafa verið krufðir. Flest tilfellin hafa komið upp í Ósló og nágrenni.

Um er að ræða mjög bráð veikindi sem dregur hundana til dauða á u.þ.b. sólarhring jafnvel þrátt fyrir mikla meðhöndlun. Þó eru dæmi um hunda sem sýna vægari einkenni og virðast hafa komist yfir veikindin.

Grunur beinist að smitefnum svo sem veirum og bakteríum en þegar er búið að útiloka rottueitur og smit af völdum salmonellu en hvort tveggja getur valdið einkennum sem hér um ræðir. Engin merki eru um að eitrað hafi verið fyrir hundunum. Ekki hefur verið útilokað að orsökina sé að finna í umhverfisþáttum eins og fóðri, hundanammi og slíku, en ekkert bendir heldur til þess. Verið er að afla upplýsinga hjá eigendum þeirra hunda sem veikst hafa.

Norska matvælastofnunin mælir með að hundaeigendur haldi hundum sínum aðskildum frá öðrum hundum og nú þegar hefur fjölda námskeiða, móta, sýninga og annarra samkoma þar sem hundar koma við sögu verið aflýst í Noregi. Hundaræktarfélögin í Svíþjóð og Danmörku hafa bannað þátttöku hunda frá Noregi á sýningum, keppnum o.fl.

Matvælastofnun hefur upplýst innflytjendur sem hugðu á innflutning hunda frá Noregi í næstu viku um ofangreinda ákvörðun. Þar sem engar upplýsingar liggja fyrir um orsök sjúkdómsins né heldur meðgöngutíma hans þá er litið svo á að áhættan af innflutningi hunda frá Noregi á þessari stundu sé óásættanleg.

Ítarefni

Mynd: af netinu