Borgaraþjónusta Utanríkisráðuneytisins sendi frá sér eftirfarandi póst fyrir skammri stundu,

Mikilvægar upplýsingar til Íslendinga sem annað hvort eru á ferðalagi erlendis eða dveljast þar tímabundið og eiga rétt á heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Ef tvö af eftirfarandi atriðum eiga við þig mæla íslensk stjórnvöld með að þú íhugir heimferð til Íslands:

  • Ef þú ert eldri en 60 ára
  • Ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm
  • Ef þú ert fjarri vinum og fjölskyldu
  • Ef þú átt ekki rétt á heilbrigðisþjónustu í landinu þar sem þú dvelst eða heilbrigðiskerfið þar annar ekki álaginu.

Sérstök athygli er vakin á á því að fólk sem sýnir sjúkdómseinkenni gæti átt á hættu að vera synjað um innritun í flug og því er óráðlegt að bíða of lengi.

Sóttvarnalæknir hefur meðal annars skilgreint Spán sem svæði með mikla smitáhættu og búast má við að álag verði talsvert á heilbrigðiskerfið þar í landiÍslendingar sem koma frá Spáni skulu fara í sóttkví í fjórtán daga eftir heimkomu. Þetta tekur til allra hluta Spánar, þ.m.t. Kanaríeyja (Gran Canaria ,Tenerife og aðrar eyjar).

Til þeirra sem staddir eru á Kanaríeyjum:

Ferðaskrifstofurnar þrjár, VITA, Heimsferðir og Ferðaskrifstofa Íslands munu ferja sína farþega heim næstu daga, fyrir helgi. Þær munu hafa samband við sína farþega og bjóða þeim að flýta heimför gegn lúkningu ferðar. Þá verða umframsæti seld öðrum sem kunna að hafa áhuga á því að nýta sér þau.


Hægt er að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins með skilaboðum á Facebook, með tölvupósti á hjalp@utn.is eða í neyðarsíma borgaraþjónustu  +354 545-0-112 sem er opinn allan sólarhringinn.