Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 varð 11,3 kílómetra austur af Grímsey um kl. 19:22 í kvöld.
Nokkrar tilkynningar borist Veðurstofu Íslands og hefur Trölli.is fregnir af því að íbúar á Tröllaskaga fundu fyrir honum.
Hafa nokkrir minni skjálftar fylgt í kjölfarið af skjálftanum.