Tónlistarmaðurinn Jói Bjarki hefur sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Kvíðadjöfull“, nú fáanlegt á öllum helstu streymisveitum. Lagið er persónulegt baráttulag sem fjallar um ofsakvíða og andlega vanlíðan – og áhrif þeirra á einstaklinga og fjölskyldur.
Jói Bjarki er fæddur og uppalinn á Hjalteyri í Eyjafirði en hefur búið á Akureyri um árabil. Hann segir tónlistina hafa orðið stærri hluti af lífi sínu á síðari árum og Kvíðadjöfull er afrakstur þess ferlis. Beinagrind lagsins varð til haustið 2024, á tíma þegar dóttir hans, Berglind Líf (22), glímdi við mikinn ofsakvíða og var í innlögn á geðdeild í fyrsta sinn. Sú reynsla varð kveikjan að textanum, sem endurspeglar líðan hennar og þá baráttu sem fjölskyldan hefur staðið í – baráttu sem enn stendur yfir, þó allt sé á réttri leið.
Frá upphafi var ætlunin að Berglind Líf kæmi að laginu, enda hefur hún mikinn áhuga á söng og tónlist, og syngur hún inn á lagið. Bróðir hennar, Davíð Máni (24), sem hefur verið áberandi í grasrótarsenu rokksins á Akureyri, leggur til rafmagnsgítarfill-ins og sóló í lok lags. Jói Bjarki sjálfur sér um kassagítara, hluta rafmagnsgítara, bassalínu, söng og raddir. Allt var þetta unnið í heimastúdíói hans, jafnhliða krefjandi aðstæðum á heimilinu.

Kvíðadjöfull er frumraun Jóa Bjarka í að gefa út lag þar sem hann sér alfarið sjálfur um vinnsluna. Áður hefur hann gefið út fjögur lög með aðstoð annarra, þar á meðal lagið Alone sem kom út á 50 ára afmælisdegi hans í fyrra. Með Kvíðadjöflinum stígur hann skrefið til fulls með heiðarlegt og hjartnæmt lag sem ætlað er að veita stuðning og samkennd þeim sem glíma við kvíða og andleg veikindi.



