Ný frétt frá tónleikahaldara Jólagesta:

Við tilkynnum hér með að almenn miðasala á Jólagesti Björgvins er hafin á Tix.is/jolagestir.

Einnig getum við með gleði staðfest að yfirvöld hafa brugðist hratt við og staðfest að tónleikahald verður ekki virðisaukaskylt við það að flytja sig yfir í streymi / pay per view.

Við getum því tekið vaskinn af og við það lækkar miðaverðið í 3.900 krónur, sem er miðaverðið sem við stefndum á upphaflega.

Hér er um að ræða miklar gleðifréttir fyrir allan íslenska menningargeirann og eiga stjórnvöld hrós skilið fyrir að bregðast svona hratt og vel við.

Undirbúningur fyrir Jólagesti Björgvins 2020 gengur vel en þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem svona stór viðburður fer fram í beinni útsendingu án áhorfenda í sal. Verið er að feta nýjar leiðir til að koma með jólin heim til ykkar, um allt land og um allan heim, en tónleikarnir eru aðgengilegir í gegnum streymi og pay per view um alla veröld.

Það er greinilega mikil spenna og jákvæðni í þjóðfélaginu fyrir þessu framtaki og erum við þakklát fyrir það.

 
 
Svona mun miðasalan virka:
Þú ferð á  www.tix.is/jolagestir Þú velur miða annað hvort fyrir streymi, myndlykil Vodafone, eða Sjónvarp SímansÞú virkjar kóðann í þeim miðli sem þú valdir og sérð strax hvort hann sé ekki að virka. Leiðbeiningar um þinn miðil muna fylgja kvittuninni sem þú færð frá Tix eftir miðakaupum lýkur.
Allar nánari upplýsingar getur þú fundið á www.jolagestir.is, en ekki hika við að senda okkur skilaboð hafir þú frekari spurningar.

Við hlökkum til að koma með jólin heim til ykkar um allan heim 19. desember!