SSNV hyggst safna saman jólagjafahugmyndum, frá sölu- eða þjónustuaðilum á Norðurlandi vestra, sem henta fyrirtækjum á svæðinu í jólapakka til starfsmanna.

Verslun jólagjafa í heimabyggð er mikilvægur liður í eflingu atvinnulífs í landshlutanum og á það ekki síður við um fyrirtæki en einstaklinga.

Þau fyrirtæki/framleiðendur sem selja vöru eða þjónustu sem hægt er að kaupa í einhverju magni og hentar fyrirtækjum til gjafa til starfsmanna geta nú skráð vöru/þjónustuframboð sitt. Upplýsingarnar verða svo birtar á heimasíðu SSNV og jafnframt á facebook síðu samtakanna.

Skráningin fer fram á eyðublaði sem aðgengilegt er hér.

Allir sem hafa upp á vörur eða þjónustu sem hentar í þessu augnamiði eru hvattir til að skrá sig.

Svo hvetjum við auðvitað fyrirtæki í landshlutanum til að nýta upplýsingarnar og versla í sinni heimabyggð.

Fyrirtæki sem staðsett eru utan Norðurlands vestra mega að sjálfsögðu líka nýta sér upplýsingarnar.