FM Trölli var með beina útsendingu frá drætti vinninga í jólaleik SR Bygg á Þorláksmessukvöld. Gríðarlega góð þátttaka var í leiknum enda vinningarnir stórglæsilegir, en til þess að komast í pottinn varð að versla fyrir 10.000 kr. eða meira.
Fulltrúi Sýslumanns, Halldór Þormar mætti í verslunina og dró vinningshafa úr þessum veglega potti.
Þeir sem fengu fyrstu fimm vinningana voru þau, 5. Gunnar Þór Óðinsson vinnuheyrnahlífar m/bluetooth, 4. Birna Óladóttir kaffivél frá Delonghi, 3. Margrét Arnarsdóttir ryksuga frá AEG, 2. Anita Elefsen pottasett og 1. Grétar Örn Sveinsson Kitchenaid hrærivél.
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir