Jólamarkaður í Menningarhúsinu Tjarnarborg er í dag, sunnudaginn 2. desember frá kl. 13.00 – 16.00 Fjöldi góðra muna og listilegt handverk, vöfflur, möndlur og sælgæti ásamt ýmsu öðru verður á þessum vinsæla jólamarkaði.

Kveikt verður á jólatrénu í Ólafsfirði á milli kl. 15:00 og 16:00 og Skíðafélag Ólafsfjarðar verður á staðnum og býður upp á kakó og piparkökur ásamt því að nýji troðarinn verður til sýnis.