Matvælaráðherra tók á móti fyrstu Köku ársins
Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tók á móti fyrstu Köku ársins 2023 í gær.
Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins.
Sigurvegari keppninnar að þessu sinni er Guðrún Erla Guðjónsdóttir í Mosfellsbakaríi.
Kaka ársins er með Doré karamellu-mousse með passion-kremi og heslihnetumarengsbotni.
Sala á kökunni hefst nú í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt land í tilefni af Valentínusardegi sem er næstkomandi þriðjudag.
Kaka ársins verður til sölu út árið.
Mynd/BIG
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, Guðrún Erla Guðjónsdóttir í Mosfellsbakaríi, og Sigurður Már Guðjónsson, formaður Landssambands bakarameistara.