Með fundarboði á 865. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar fylgdi bókun frá 115. fundi markaðs- og menningarnefndar, þar sem nefndin vísar hugmynd að uppsetningu á salernisaðstöðu í Skarðsdalsskógi sem nýta mætti fyrir útivistarfólk á svæðinu til umfjöllunar í bæjarráði.
Í bókun nefndarinnar kemur fram að þörf á slíkri aðstöðu sé til staðar og að henni hafi verið komið á framfæri við sveitarfélagið. Á fundi nefndarinnar kynnti markaðs- og menningarfulltrúi mögulega útfærslu verkefnisins og hvaða styrkleiðir eru mögulegar til slíks verkefnis s.s. hjá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Bæjarráð fagnaði framkomnum metnaðarfullum hugmyndum og felur bæjarstjóra að vinna að frekari útfærslu í samráði við markaðs- og menningarfulltrúa auk þess að kanna möguleika á styrkveitingum í slíkar framkvæmdir frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og fleiri aðilum enda er slík framkvæmd háð styrkveitingum.