Einn af vorboðunum í Fjallabyggð er þegar Kiwanis gefur nemendum 1. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar reiðhjólahjálma. 

Það voru vaskir menn úr Kiwanisklúbbnum Skildi á Siglufirði sem afhentu nemendunum hjálmana við formlega athöfn við Grunnskóla Fjallabyggðar.

Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa nemendum 1. bekk reiðhjólahjálma. Bæta þannig öryggi þeirra í umferðinni og koma í veg fyrir alvarleg slys og óhöpp  við hjólreiðar sem afar vinæl frístundaiðkun auk þess að vera góð samgönguleið.  Hjálmarnir nýtast einnig vel við notkun hjólabretta og hjólaskauta. 

Sögu verkefnisins má rekja aftur til 1990 þegar hugmyndin kviknaði í samræðum manna á meðal á Norðurlandi. Stefán Jónsson, sem var öflugur félagi Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á Akureyri hrinti hugmyndinni í framkvæmd vorið 1991 með tilstyrk Sjóvár, Mjólkursamlagsins og fleiri góðra fyrirtækja ásamt því að leggja til fé úr styrktarsjóði klúbbsins.   Allir 1.bekkingar grunnskóla á Akureyri fengu reiðhjólahjálma til eignar.  Verkefnið mæltist afar vel fyrir og hugmyndin var tekin upp af fleiri klúbbum á Norðurlandi  og einnig sunnan heiða.
2003-4 var Sigurgeir Aðalgeirsson frá Húsavík umdæmisstjóri og þekkti verkefnið vel.  Hann gekkst fyrir því að gera það landsverkefni Kiwanis og leitaði eftir styrktaraðilum til þess.  
Niðurstaðan varð að Eimskip gerðist allsherjarstyrktaraðili við verkefnið og hefur verið það síðan  og reynst ómetanlegur  bakhjarl.  Fyrirtækið hefur með þessu sýnt mikla samfélagslega ábyrgð.

Verkefnið hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana enda kynnt vel á Evrópu- og heimsþingum Kiwanis.  Svo mikla að Kiwanis International veitti  Eimskipum sérstaka viðurkenningu fyrir hana.

Heimild og mynd/ Fjallabyggð