Kjaftað um kynlíf – Fyrirlestur fyrir foreldra um hvernig ræða megi um kynlíf við unglinga. 

Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir, Sigga Dögg, verður með fyrirlestur í Dalvíkurskóla þriðjudaginn 5. febrúar kl. 17:00 í boði félags- og fræðslusviðs Dalvíkurbyggðar og í  Grunnskóla Fjallabyggðar í Tjarnarborg miðvikudaginn 6. febrúar nk., kl. 18:00 á vegum foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar.

Fyrirlesturinn nefnist “Kjaftan um kynlíf” og er fyrirlestur fyrir fullorðna um hvernig megi ræða um kynlíf við unglinga.

Virk kynfræðsla seinkar kynferðislegri hegðun barna og gerir hana ábyrgari og öruggari þegar hún hefst. Rannsóknir styðja að virkja þurfi foreldra í samræðum við börn og unglinga um kynferðisleg málefni. Umfjöllunarefnin verða kynfæri, kynlífsathafnir,klám og kynlífsmýtur, svo fátt eitt sé nefnt. Með húmor og hreinskilni að leiðarljósi er auðveldara að ræða málefni sem mörgum þykir óþægileg og jafnvel tabú. Markmið fyrirlestrarins er að kynfræðsla verði sjálfsagður hluti af samræðum foreldra við börnsín og að fræðslan styrki þeirra samskipti.

Sigga Dögg, er með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskóla Ísland og M.A. gráðu í kynfræði (sexology) frá Curtin háskóla í Vestur Ástralíu. Sérstaða hennar sem kynfræðari er hispurlaus og hreinskilin nálgun á kynlífi sem byggir á innlendum og erlendum rannsóknum ásamt reynslu af kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum víðsvegar um landið.