Klukk er tímaskráningarapp sem hjálpar þér að halda utan um vinnutímana þína með einföldum hætti. Þannig hjálpar appið upp á að þú fáir rétt greitt frá þínum launagreiðanda. Klukk er líka fáanlegt á ensku og pólsku. Nýjasta útgáfan af Klukki uppfærist sjálfkrafa í símanum og er skipt um tungumál með því að fara í stillingar í appinu.

Tilgangurinn með appinu er að hjálpa launafólki að halda utan um sínar vinnustundir. Þannig má á auðveldan hátt nálgast yfirlit yfir unna tíma í mánuði og bera saman við greiddar vinnustundir á launaseðli og ganga þannig úr skugga um að þú fáir rétt greitt frá þínum launagreiðanda.

Í appinu getur þú klukkað þig inn og út, ásamt því að appið minnir þig á að klukka sig þegar þú kemur eða ferð af vinnustaðnum. Á einfaldan máta er jafnframt hægt að fá tímaskýrslu senda í tölvupósti sem excel-skjal. 

Klukk er fáanlegt í Appstore (iPhone) og Playstore (Android). Félagsmenn eru hvattir til að ná í appið og prófa. 

Allar nánari upplýsingar um appið er að finna á heimasíðu ASÍ.