Eining-Iðja biðlar til félagsmanna að taka þátt í stuttri skoðanakönnun um stöðu þeirra.
Það tekur stuttan tíma og allir sem svara komast í pott og geta unnið 30.000 króna gjafakort. Það tekur aðeins um 10 mínútur að svara könnuninni. Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, áhrif heimsfaraldursins í starfi sem og á einkalíf.
Könnunin hófst miðvikudaginn 24. nóvember, og mun ljúka miðvikudaginn 8. desember nk.
Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa til við að greina stöðu launafólks á Íslandi.
TAKA ÞÁTT Í KÖNNUN
Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum.
- Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu.
- Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
- Þrír þátttakendur vinna 30.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna.
Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.