Í dag sunnudaginn 10 apríl kl. 13:00 er þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla í beinni útsendingu frá Kanaríeyjum.

Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum úr helli sínum í Angostura gljúfri.

Kristín og Gunnar Smári koma einnig fram í þáttunum, Hvar er best að búa? á Stöð 2 kl. 20.10 og Sunnudagssögum á Rás 2 kl. 12.40 í dag.

Leikin verða lög úr ýmsum áttum í þættinum Tíu dropum, spjallað um heima og geima og óvæntur gestur kemur í heimsókn, kíkt á fréttir vikunnar á trölli.is auk þess sem uppskrift vikunnar verður á sínum stað. Leitast verður við að fylgja því sem segir í stiklunni: “heimilislegur og svolítið skemmtilegur þáttur”.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 – 15:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is