Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur óskað eftir tilnefningum á fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins, Lyfjastofnunar og Matvælastofnunar í starfshóp um framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu (Cannabidiol).
Hópnum verður falið að yfirfara núgildandi löggjöf og semja frumvarp um heimild til notkunar CBD-olíu í matvælum.
CBD-olía er ein fjölmargra afurða sem vinna má úr iðnaðarhampi en í júní sl. var gerð lagabreyting sem heimilar innflutning á fræjum til ræktunar á iðnaðarhampi. Þær tegundir iðnaðarhamps sem heimilt er að rækta á Íslandi innihalda lágt THC gildi og fyrir vikið flokkast þær ekki sem vímugjafar. Engu að síður heimilar núgildandi löggjöf ekki framleiðslu og markaðssetningu á CBD-olíu sem fæðubótaefni á Íslandi.
Olían er er e.t.v. sú afurð sem þykir hvað verðmætust og mikil eftirspurn er eftir henni um þessar mundir. Ráðuneytið hefur orðið vart við mikinn áhuga á CBD- olíu og mögulegri framleiðslu og markaðssetningu á henni.