Krummi Björgvinsson gefur út nýtt lag sem ber heitið Frozen Teardrops en það er hreinræktað útlaga kántrý rokk með gospel áhrifum.

Textinn er ekki á léttu nótunum en hann fjallar um utangarðsfólk í samfélaginu sem skortir ást og umhyggju og hvað götulífið hefur í för með sér. Með frosin tár á tómum maga biðja þau um hjálparhönd með oftast engum árangri vegna fordóma samfélagsins. Þau reika með vindinum nafnlaus og ósýnileg eins og útskúfaðir englar alheimsins.

Samhliða útgáfu lagsins kemur tónlistarmynd við lagið. Myndbandið gerist á einhverskonar felustað í eyðimörk þar sem fjölkynngi á sér stað. Seiðskrattar sem fremja seið í gegnum tónlist til þess að virkja innri sem ytri krafta. 

Myndbandinu er leikstýrt af Einari Snorra og Brynjari Snæ. Einar Snorri er partur af tvíeykinu Snorri Bros sem hafa leikstýrt myndböndum meðal annars fyrir R.E.M og Black Rebel Motorcycle Club. Brynjar Snær er þekktur sem einn fremsti ljósmyndari landsins. Myndbandið var gert með hjálp frá myndlistarmanninum Jóni Sæmundi Auðarsyni. Framleiðsla var í höndum Krumma, Snorra Bros og Öldu Music.

Flytjandi:: Krummi
Heiti lags:: Frozen Teardrops
Útgefandi:: Alda Music ehf.
Höfundur lags og texta:: Oddur Hrafn Björgvinsson