Nýtt verkefni á Karolina Fund hefur vakið athygli síðustu daga. Þar stendur listamaðurinn Brandur Bryndísarson Karlsson eða Brassi að baki sérhönnuðum bollum sem prýdd er hans eigin myndlist, málverkum sem hann málar með munni. Verkefnið ber einfalt en áhrifaríkt
markmið: að gera list Brands aðgengilegri og skapa honum tækifæri til að halda áfram að starfa sem listamaður.

Margir kannast við Brand eftir að umfjöllun um hann birtist fyrir nokkrum árum. Þar var fjallað um ferðalag hans í svifvæng í sérsmíðuðum flugstól ásamt Gísla Steinari Jóhannessyni, vini hans.
Þrátt fyrir að vera lamaður fyrir neðan háls hefur Brandur sýnt óvenjulegan þrekvilja og lífsgleði sem hefur haft djúp áhrif á þá sem honum kynnast.

Í samtali segir Brandur að listin hafi alltaf verið leið til að láta rödd sína heyrast. „Ég vil bara skapa, þó að líkaminn fylgi ekki. Listin er það sem gefur mér sjálfstæði, hún er vinnan mín og hún er leiðin mín til að vera hluti af samfélaginu,“ segir hann.

Hann segir að verkefnið á Karolina Fund sé sprottið af löngun til að geta haldið áfram að mála, skapa og þróa eigið frumkvöðlastarf. „Fólk sér oft fötlunina fyrst, en ég vil að fólk sjái listina líka.
Bollarnir eru leið til að koma henni til fleiri og byggja upp starf þar sem ég get skapað áfram.“

Gísli Steinar, sem hefur fylgt honum í gegnum ýmis ævintýri, segir að listsköpun Brands sé í senn áhrifamikil og hvetjandi.
„Það er eitthvað við það að sjá mann sem mætir svona áskorunum og ákveður samt að skapa fegurð á hverjum einasta degi. Þetta verkefni á skilið athygli og aðstoð,“ segir Gísli.

Á bollana er prentað myndefni úr málverkum Brassa, þannig að list hans flyst beint inn í daglegt líf notenda, og þeir eru seldir til styrktar listsköpun og frumkvöðlastarfi hans.

Sjá nánar um verkefnið og Brand hér:
https://www.karolinafund

Myndir/aðsendar