Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands undirrituðu í gær landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu.

Áætlunin er unnin í sameiningu af stofnunum þremur og markar tímamót í þeirri baráttu sem átt hefur sér stað undanfarin 50 ár en talið er að sauðfjárriða hafi borist til Íslands árið 1878.

Drög að áætluninni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí sl. og bárust alls 17 umsagnir frá hagaðilum.

Áætlunin gerir ráð fyrir breyttri nálgun við útrýmingu riðuveiki frá því sem verið hefur, horft er frá því að reyna að útrýma riðusmitefninu sjálfu en megináhersla lögð á að útrýma veikinni með ræktun fjárstofns sem ber verndandi arfgerðir gegn smitefninu ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu þess.

„Með þessum aðgerðum munum við treysta heilbrigði sauðfjár. Heilbrigði dýra er lykilþáttur í velferð þeirra, og við höfum af því allan hag að bæta umgengni okkar við dýrin sem við höldum til manneldis”, sagði matvælaráðherra. „Þessi áætlun er því mikilvægt framfaraskref fyrir íslenskan landbúnað“.

Áætlunina má nálgast hér.