Trölli.is fær sendan launaseðil öryrkja mánaðarlega. Hér er hægt að sjá svart á hvítu þann blákalda raunveruleika sem öryrkjar á Íslandi búa við.
Öryrkinn sendi einnig mynd af skattskyldum tekjum hans á síðasta ári.
Fengum eftirfarandi línur sendar með launaseðlinum að þessu sinni.
“Að undanförnu hafa verið fréttir í fjölmiðlum um aðbúnað þeirra tæplega 22 þúsund Íslendinga sem eru dæmd í fátækt vegna örorku. Talað er um fátræktargildru eins og hún sé eitthvað nýkomin til.
Hér má sá hvaða árslaun ég hafði á síðasta ári, sem hafa lítið breyst síðustu tvo áratugina.”
Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í Silfrinu þann 23. febrúar:
„Okkur hefur tekist stórkostlega að bæta lífskjörin á Íslandi“.
Eitt það “merkilegasta“ sem gerst hefði í þessum málum á undanförnum árum væri það að ríkið hefði „opnað bækurnar“ og gert vefinn tekjusagan.is, „þar sem við einfaldlega flettum hulunni af því hvernig kjör hafa þróast á Íslandi frá árinu 1991.[…] Vefurinn dregur það fram að okkur hefur tekist stórkostlega að bæta lífskjörin á Íslandi og einna best við þá hópa sem helst eru í umræðunni í dag; eldri borgara og þá sem eru neðst í launastiganum.“
Öryrkinn heldur áfram og segir:
“Hvernig stendur þá á því að allt logar í verkföllum, fyrst búið er að bæta lífskjörin svona stórkostlega? Ekki getum við öryrkjar farið í verkfall!”
“Ég held að hver heilvita manneskja sjái að að þessi “stórkostlega lífskjarabreyting” er helvítis þvæla eins og sést vel á launaseðlinum mínum! Barni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir, hvenær fæ ég að vera maður með mönnum?”
Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.
Sjá fyrri fréttir um launaseðil öryrka: Hér
Myndir: aðsendar