Til að setja andlit á þær tölulegu upplýsingar sem komu fram í nýlegri skýrslu ASÍ um brot á vinnumarkaði, setti Alþýðusambandið í gang aðra rannsókn í sumar sem samanstóð af djúpviðtölum við útlendinga sem hafa þurft að þola að á þeim sé brotið.
Þessi rannsókn var unnin með styrk frá Velferðarráðuneytinu og það var ungur hagfræðinemi, Nanna Hermannsdóttir sem vann rannsóknina.
Hér er rætt við Nönnu um niðurstöður hennar vinnu.