Lagðar voru fram athugasemdir og umsagnir á 315. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar, sem bárust vegna skipulagslýsingar sem kynnt var skv. 1.mgr. 30. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Einnig voru lagður fram breytingaruppdráttur sem unninn var til hliðsjónar af framlögðum umsögnum og sýnir fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi Fjallabyggðar við Brimnes í Ólafsfirði.

Nefndin þakkar fyrir þær umsagnir og ábendingar sem bárust en ekki er skylt að svara þeim á þessu stigi málsins.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að framlögð tillaga verði kynnt á íbúafundi skv. 2.mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl: