Þjóðskrá hefur hafið birtingu á gögnum úr leiguskrá íbúðarhúsnæðis gjaldfrjálst á vef stofnunarinnar. Þjóðskrá hefur um árabil skráð upplýsingar í leiguskrá og með þessu móti er Þjóðskrá að koma til móts við sjónarmið um greiðara aðgengi að markaðsupplýsingum um leigusamninga sem tengjast íbúðarhúsnæði.

Leiguskrá fasteigna inniheldur upplýsingar sem Þjóðskrá skráir upp úr þinglýstum leigusamningum íbúðarhúsnæðis. Þar má meðal annars finna upplýsingar um leiguverð, gildistíma leigusamnings og staðsetningu leiguhúsnæðis. Þess ber þó að geta að ekki er öllum leigusamningum þinglýst og inniheldur leiguskráin því aðeins hluta af öllum leigusamningum um íbúðarhúsnæði. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega eftir skráningu og yfirferð. Útgáfa leiguskrár miðast við 22. hvers mánaðar eða fyrsta virka dag eftir það.