Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,4 stig í júlí 2020 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júlí 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 834 samningar, sem þinglýst var í júlí 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2020 eru því unnar upp úr 648 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ. 

Heimild skra.is