Nemendur Tröllahóls, fjögurra og fimm ára úr Leikhólum í Ólafsfirði, heimsóttu MTR í gær.
Þau höfðu meðferðis og afhentu myndir sem starfsbrautarnemar í MTR munu svo semja sögur út frá.
Myndefnið var frjálst en flestir teiknuðu fólk, til dæmis fjölskyldu sína, en sumir teiknuðu tröll og aðrar fígúrur sem ekki búa í mannheimi.
Hugmyndin að þessu skemmtilega samstarfsverkefni MTR og Leikhóla eiga hjónin Guðrún Þorvaldsdóttir og Hólmar Hákon Óðinsson. Hann er umsjónarmaður starfsbrautar en hún er iðjuþjálfi bæði í leikskólanum og MTR.
Sögurnar með myndum verða á sýningu skólans á verkum nemenda í desember. Myndir
Frétt og myndir: MTR