Liðskiptasetur sett á fót á Akranesi – hægt verður að gera um 430 aðgerðir á ári

Liðskiptaaðgerðum verður fjölgað umtalsvert með opnun liðskiptaseturs, þ.e. skurðstofu þar sem eingöngu er sinnt liðskiptaaðgerðum, við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE). Gert er ráð fyrir að liðskiptasetrið taki að fullu til starfa í mars á næsta ári. Stofnunin verður þá með getu til að framkvæma um 430 aðgerðir á ári sem er rúmlega tvöföldun á núverandi afkastagetu. Stofnun setursins er liður í víðtækari áætlun sem unnið hefur verið að síðustu misseri í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra, til að mæta vaxandi þörf fyrir þessar aðgerðir, stytta bið fólks í brýnni þörf, bæta verkferla og samræma þjónustuna. 

300 aðgerðir til viðbótar í sérstöku átaksverkefni

Að jafnaði eru gerðar rúmlega 1.500 liðskiptaaðgerðir á ári við Landspítala, Sjúkrahúsið á Akureyri og HVE. Með tilkomu liðskiptasetursins er stefnt að varanlegri árlegri fjölgun sem nemur um 260 aðgerðum á ári. Vegna COVID-19 hafa aðgerðir síðustu misseri verið nokkru færri en að jafnaði. Því hefur verið ákveðið að ráðast í sérstakt átak til 12 mánaða til að fjölga aðgerðum enn frekar tímabundið og stytta biðlista. Í því átaki er gert ráð fyrir að gerðar verði um 300 liðskiptaaðgerðir sem koma til viðbótar þeirri fjölgun sem leiðir af opnun liðskiptasetursins á Akranesi.

Mikilvægt að ekki þurfi að fresta aðgerðum vegna  bráðatilvika

Undirbúningur að stofnun liðskiptasetursins stendur yfir, þ.e. húsnæðisframkvæmdir, kaup á tækjabúnaði og ráðningar starfsfólks. Í sumar hefur einnig verið unnið að stækkun handlækningadeildar HVE þar sem rúmum verður fjölgað úr 10 í 16 en deildin tekur á móti sjúklingum í kjölfar liðskiptaaðgerða. Liðskiptasetrið gerir kleift að fjölga aðgerðum til framtíðar. Með því skapast umgjörð og festa í kringum þessa starfsemi sem fyrirbyggir að fresta þurfi aðgerðum vegna bráðatilfella, líkt og algengt er, en gögn sýna að fresta þarf um 25% valkvæðra aðgerða við Landspítala af þeim sökum. Liðskiptaaðgerðir hér á landi eru gerðar á þremur stöðum auk HVE, þ.e. á Landspítala, við Sjúkrahúsið á Akureyri og á Klínikinni Ármúla. Áætlaður kostnaður við að koma á fót liðskiptasetri við HVE er rúmar 200 milljónir króna.

Verklag vegna liðskiptaaðgerða verður samræmt

Mikilvægur liður í aðgerðum til að fjölga liðskiptaaðgerðum og bæta stöðu sjúklinga sem þurfa á slíkum aðgerðum að halda er vinna sem stendur yfir við að samræma og staðla verklag í tengslum við liðskiptaaðgerðir, allt frá undirbúningi fyrir tilvísun þar til eftirfylgni í kjölfar aðgerðar lýkur. Markmiðið er m.a. að staðla og samræma verklag milli stofnana bæta forgangsröðun og stuðla að auknu gagnsæi í öllu ferlinu í þágu sjúklinga og framkvæmdaaðila. Þessi vinna fer fram í samstarfi opinberra stofnana sem sinna liðskiptaaðgerðum og embættis landlæknis. Verkefni þeirra verður einnig að útfæra þverfaglega meðferð til hæfingar fyrir sjúklinga sem komnir eru á biðlista eftir liðskiptaaðgerð, enda mikilvægt að sinna þeim hópi markvisst meðan þeir bíða aðgerðar.

Þess er vænst að með framangreindum aðgerðum verði biðtími þeirra sem bíða eftir liðskiptaaðgerð í brýnni þörf samkvæmt forgangsröðun, ekki lengri en 90 dagar.


Mynd: Stjórnarráðið